Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur

tékk tékk

11. október 2009 klukkan 00:23
....er allt í lagi??... Nánar
Íris Lind Sćvarsdóttir
Engin athugasemd

Gudbrandsmysuostur og kaffi

09. júlí 2008 klukkan 10:18

er ótrúlega gott saman. Var að vandræðast hvað ég ætti að fá mér með kaffinu og var komin með ostinn á borðið og fékk mér sneið...það er eitthvað nautnalegt við að skera karamellubrúnan og mjúkan ostinn með beittum ostahníf, svo bráðnar hann uppí manni með kaffinu.....TRy it.

Nú erum ég og Rakel einar heima.....já við erum búin að nefna litlu smússuna okkar loksins....nú er bara að finna tíma með prestinum til að skíra í Möðrudal. Við erum sem sagt einar heima því Gulli var að fara í höfuðborgina og gríslingarnir hertóku ömmu sína þegar hún kom úr útlegðina að vestan og heimtuðu gistingu.

Markmið dagsins er að fara í góðan göngutúr og heimsækja skemmtilegt fólk:)

hilsen

Íris og Rakel :)
Íris Lind Sćvarsdóttir
3 athugasemdir

Memm eđa ekki?

30. júní 2008 klukkan 13:27

Í nútímaheimi er of mikið af miðlum, þessi miðill átti eingöngu að þjóna tilgangi meðan húsmóðirin væri erlendis í námi. Síðan var hugmyndin að setja inn óléttumyndir og síðunni var læst en engar komu óléttumyndirnar og meðan síðan var læst var þvílíkt vesen að komast inná hana. Svo nú var lásinn tekin af og hvað svo? Það eru of margir möguleikar í heiminum, andlitsbókin, barnalandið, myndaheimar, bloggheimar og svo videre og videre....þessi heimur hefur verið opnaður aftur en engu lofað um framhaldið...eða alla vega verður tilkynnt um endanlega veru.

Til að standa við loforðið þá eru nokkrar myndir settar inn í albúmið

húsmóðirin 
Íris Lind Sćvarsdóttir
Engin athugasemd

Hér erum viđ ađ renna okkur í kirkjubrekkunni....

17. febrúar 2008 klukkan 12:50

það var svo mikil hálka upp Fjarðaheiðina að mamma gunga fór í kirkjubrekkuna en það var mjög gaman, rifjaði upp margar skemmtilegar stundir í denn þegar þar var skíðalyfta og alles....

Nú er sunnudagur, Natalía gistir í 2 nætur með vinkonu sinni uppí sveit, var að keppa í körfubolta í gær og þau unnu mótið...hún er ekki einu sinni að æfa lengur en það vantaði í liðið.
Gulli og Emil eru uppí húsi að vinna, BB og FH inní herbergi að horfa á barnatímann og ég að vinna hér í tölvunni fyrir 700IS hátíðina. 
Ætla nú að hendast í þrif á heimilinu og druslast svo með krakkana uppí Kompu og mála smá og fá mér svo kaffi á Kaffi Valný á eftir.....a woman has to treat herself:)


luv á línuna
íris
ps. set inn bumbumynd fyrir áhugasama á morgun.
Íris Lind Sćvarsdóttir
5 athugasemdir

Lok lok og lćs og allt í stáli

17. febrúar 2008 klukkan 12:38

Ég ætla að læsa aðganginum að síðunni því ég er orðin svo fræg:) 
Nei þar sem ég kem til með að senda inn myndir af væntanlegum yngsta meðlim familíunar og kannski bumbumyndir bráðum þá vil ég ekki að Palli perri sé að horfa.

hils
iris
Íris Lind Sćvarsdóttir
2 athugasemdir

Jólin eru búin

13. febrúar 2008 klukkan 23:02

það er víst rétt. Nú fara páskarnir líka að nálgast. 

Héðan úr stórborginni er nóg að frétta eins og alltaf. Börn fæðast, fólk að byggja, konur að kaupa mjólk í kaupfélaginu og sunnudagsmessan á sínum stað.

meira er ekki í fréttum í bili

kveðja
íris
Íris Lind Sćvarsdóttir
3 athugasemdir

Ţađ eru ađ koma jól......

16. desember 2007 klukkan 13:41

....nú er sunnudagur og ég sit með kvef í nefi, kertaljósin á, jólalögin í útvarpinu og börnin slást í Dracokeppni inní herbergi.....Gulli er stungin af...........arrrrgg ég verð að slökkva á útvarpinu, það er ekki eðlilegt hvað auglýsingarnar eru stilltar miklu hærra en allt annað sem spilað er, óþolandi..........já Gulli stungin af til London á tónleika með The Pokes.....tannlausi kallinn sem á eitt flottasta jólalag allra tíma og ég bíllaus í hálkunni enda byrjaði ég á því í gær að fljúga á hausinn og taka Finn með mér...auðvitað tókst mér að gera það á aðalgötu bæjarins með stæl....alltaf jafn fyndið þegar maður dettur:)

Það er annars bara þetta hefðbundna að frétta, allir að missa sig í bænum og landinu í jólabrjálæði, 150 viðburðir sem maður á að vera á í einu og svo fram eftir götunum....ég er alveg búin að fá nóg af þessu jólabrjálæði í bili.

Jæja best að drífa sig út í hálkuna aftur og kaupa tilsniðið jólakökuhús svo stressið verði sem minnst......andið djúpt og finnið jólailminn í loftinu

jólakveðja
íris
Íris Lind Sćvarsdóttir
4 athugasemdir

Húsiđ í höfn

03. desember 2007 klukkan 05:05

Þá er búið að kaupa nýtt hús yfir fjölskylduna. Staðsetningin er Bjarkarsel 6 á Egilsstöðum og eru herlegheitin 214 fermetrar. Við gengum bæði frá sölu og kaupum á einu bretti og er það hentugt því við erum þá þurfum við ekki að afhenda fyrr en við erum tilbúin. Við fáum afhent 21.des sem setur smá pressu á mannskapinn að liggja ekki bara á meltunni yfir jólin enda er nú þegar búið að bóka Emil bróðir til að sjá um raflagnirnar. Annars verður gestaherbergi í nýja húsinu fyrst um sinn eða þar til nýr fjöskyldumeðlimur fæðist. Bílskúrinn er 36 fermetrar svo þar verður nóg pláss fyrir mig til að mála :)

Að öðru leyti er ekki mikið að frétta nema að mamma átti afmæli í dag...2.des og fórum við í kjötsúpu til hennar af því tilefni....nammm hvað hún var góð, sérstaklega þar sem við vorum búin að vera frá klukkan eitt niðrí íþróttahúsi þar sem Natalía og Brynhildur voru að keppa á frjálsíþróttamóti, skelltum okkur svo beint í sund þar á eftir í tvo tíma og óðum svo skafla og storm uppí blokk til mömmu í heitu kjötsúpuna.....mhhhh. Brynhildur og Halla áttu snilldartakta í lauginni en þær fóru margar ferðir uppúr og veltu sér uppúr snjónum í hríðarbyl....það er eitthvað svo nautnalegt við það að vera í sundi í svona veðri....

Þessi jól verða frekar skrítin í ár, pabbi í Tælandi, mamma á kvöldvakt, Emil í Reykjavik svo Vilmar verður einn hjá okkur. Erla og Daníel verða heldur ekki um jól og áramót svo þetta verður þónokkuð öðruvísi en venjulega. 
jæja ég ætla að reyna að sofna aftur, varð andvaka en það gerist aldrei hjá mér.....

ps. setti inn mynd frá LungA í sumar, þetta var anddyrið sem krakkarnir hjá okkur gerðu í myndlistarhóp

godt nat
iris

 
Íris Lind Sćvarsdóttir
4 athugasemdir

Skautađ á pollinum hjá íţróttahúsinu

17. nóvember 2007 klukkan 15:29

Af því það eru að koma jól og ég farin að hlakka til jólanna þá datt mér þetta nostalgíublogg í hug.
Hver man eftir því þegar við skautuðum fram á kvöld og aðallega á kvöldin á tjörninni sem myndaðist svo oft hjá íþróttahúsinu og klettunum. Ég man að við vorum í einhverjum leikjum oft en man ekkert hvaða leikir það voru. Yfirleitt var maður orðin svo sárfættur að það var sárt að fara úr skautunum. Svona nýtti maður nú pollana í bænum vel. Á sumrin fórum við Hanna út á bát á þennan poll og sofnuðum með bland í poka og svo kom veturinn og þá skautaði maður. Endilega komið með skautasögur eða bara Gautasögur líka.)

knús
iris
Íris Lind Sćvarsdóttir
4 athugasemdir

Já....já......já.....

29. október 2007 klukkan 18:24
......já ég hef hugsað mér að taka upp samskiptamáta gamla kallsins í Spaugstofunni (sem ég man ekki hvað heitir) og segja bara já við öll tækifæri. Þá þarf ég ekki að hugsa og ekki hugsa um eða skilja hvað aðrir eru að segja. Hef fengið mig fullsadda af samskiptum yfir höfuð. Mér fannst ró og hvíld í því að horfa á þann gamla í síðasta þætti svara svona og hef því séð þetta sem nýja leið til að komast hjá því áreiti sem nauðgar manni á hverjum degi.

ps. fann ekki mynd af honum en þetta gæti líka verið leið...að hafa bara skilti og spara röddina líka.

hils
Mia (var að taka Múmínpróf)
Íris Lind Sćvarsdóttir
2 athugasemdir